Flott bréf þó ég myndi vilja hafa CC0 á lista yfir möguleg CC-leyfi.
Nema það sé einhverra hluta vegna ekki leyfilegt leyfi á WikiMedia
verkefnum.
- Svavar Kjarrval
On 20/02/13 08:54, Bjarki Sigursveinsson wrote:
Hæ öll,
Sú hugmynd hefur komið upp oftar en einu sinni að mögulegt verkefni
fyrir Wikimedia Ísland gæti verið að þrýsta á opinberar stofnanir,
samtök og aðra aðila til þess að veita verkum sínum frelsi.
Sérstaklega áhugavert nú í aðdraganda kosninga er að þrýsta á
stjórnmálaflokka og samtök að gefa út kynningarefni sitt á borð við
myndir af frambjóðendum samkvæmt Creative Commons leyfi þannig að það
sé hægt að nota myndefnið t.d. á Wikipediu. Flokkarnir ættu að sjá sér
hag í því vegna þess að markmiðið með slíku kynningarefni er auðvitað
að það fari sem víðast og enginn vill vera eini flokkurinn sem fær
ekki myndskreyttar greinar um frambjóðendur sína á Wikipediu (sem er
gríðarlega áberandi í niðurstöðum leitarvéla). Það sem þarf að gera er
að annars vegar kynna það fyrir flokkunum hvað felst í frjálsum
afnotaleyfum og hins vegar að leiðbeina þeim um hvernig þeir geti
staðið rétt að því að gera þetta þannig að það gangi ekki á rétt
ljósmyndarans og sé einfalt og þægilegt fyrir notendur Wikimedia
Commons þegar kemur að því að hlaða myndunum þar inn.
Ég hef sett mig í samband við Wikimedia Foundation um að fá afnot af
nafni og lógói stofnunarinnar til þess að nota með bréfi til flokkanna
til þess að í því felist meiri vigt en ef það væri sent á vegum
einstaklings. Líta má á þetta sem "pilot project" fyrir stofnun
Wikimedia Ísland í framtíðinni.
Fyrstu drög að bréfi til stjórnmálaflokka eru hér fyrir neðan. Þetta
verður að vera skýrt þannig að fólk sem hefur aldrei áður heyrt minnst
á Creative Commons geti áttað sig á því um hvað málið snýst og má
helst ekki verða svo langt að upptekið fólk freistist til þess að lesa
ekki allt bréfið.
Efni: Varðar notkunarskilmála kynningarmyndefnis Xflokksins.
Undirritaður sendir þessi skilaboð fyrir hönd hóps áhugamanna um
framgang íslensku Wikipediu og með samþykki Wikimedia Foundation til
þess að benda íslenskum stjórnmálaframboðum á kosti þess að
kynningarefni á borð við myndir af frambjóðendum sé gefið út með
„frjálsum“ afnotaleyfum á borð við þau sem kennd eru við Creative Commons.
Hvað er Wikimedia Foundation?
Wikimedia Foundation eru bandarísk félagasamtök sem ekki starfa í
ágóðaskyni og reka fjölmargar vefsíður. Þekktasta verkefni WMF er
Wikipedia sem er frjálst alfræðirit sem er skrifað af notendum sínum
og hefur á sinni rúmlega 12 ára sögu orðið að einni fjölsóttustu
vefsíðu í heimi. Wikipedia er til á 285 tungumálum, þar á meðal íslensku.
Hvað er frjálst afnotaleyfi?
Með frjálsu afnotaleyfi er átt við leyfi sem rétthafi höfundaréttar á
einhverskonar hugverki veitir almenningi til þess að nota, dreifa eða
byggja á hugverkinu með litlum takmörkunum. Frjáls afnotaleyfi gera
almenningi þannig auðvelt fyrir að dreifa hugverkinu og vinna með það
sem stuðlar að hámarksútbreiðslu verksins. Stærsti notanda frjálsra
afnotaleyfa á heimsvísu er Wikipedia, frjálsa alfræðiritið, sem er
gefin út samkvæmt Creative Commons BY-SA leyfi sem þýðir að hver sem
er má afrita efni Wikipediu, dreifa því áfram, byggja afleidd verk á
því og jafnvel selja það í ágóðaskyni svo lengi sem höfundar þess er
getið og svo lengi sem möguleg afleidd verk verði gefin út undir sama
leyfi. Einhverjir kunna að staldra við það að sala í ágóðaskyni sé
leyfð og hugsa sem svo að það sé ómögulegt að gefa öðrum svo víðtækt
leyfi til afnota á verkinu en þá ber að líta á það að /allir/ hafa
þennan rétt og því er það í framkvæmd þannig að lítil hagnaðarvon er
af slíkri sölu þar sem enginn einokunarréttur er til staðar.
Margar útgáfur frjálsra afnotaleyfa eru til en langþekktust eru leyfin
á vegum Creative Commons sem eru bandarísk félagasamtök. Creative
Commons afnotaleyfi gera höfundum kleift að gefa út verk sín með
frjálsum skilmálum sem þeir geta sniðið að eigin þörfum. Sjá umfjöllun
á íslensku á vef Creative Commons:
https://creativecommons.org/licenses/?lang=is
Af hverju ætti Xflokkurinn að gefa út kynningarefni samkvæmt frjálsu
afnotaleyfi?
Wikipedia er sem áður segir „frjálst alfræðirit“ sem gefið er út
samkvæmt frjálsu afnotaleyfi. Það þýðir að myndefni sem er notað á
Wikipediu þarf líka að vera gefið út samkvæmt frjálsu almennu
afnotaleyfi. _Það er ekki nóg að flokkurinn veiti sérstakt leyfi fyrir
notkun mynda á Wikipediu eða veiti almennt leyfi til notkunar í
kynningar- eða fræðsluskyni eins og stundum er gert._Það er heldur
ekki nóg að velja hvaða Creative Commons leyfi sem er vegna þess að
sum CC-leyfi fela í sér takmarkanir á notkun í ágóðaskyni eða bann við
gerð afleiddra verka. Hvorugt passar innan skilmála Wikimedia um
frjáls afnotaleyfi. Eingöngu leyfin CC-BY og CC-BY-SA eru nægjanlega
frjáls í skilningi Wikimedia.
Með því að myndefni er gefið út með frjálsu afnotaleyfi er heimilt að
hlaða því inn á miðlægan gagnabanka Wikimedia og þar með nota það á
öllum vefjum Wikimedia, t.d. Wikipediu. Þannig er hægt að myndskreyta
Wikipediugreinar um einstaka frambjóðendur flokksins með myndum sem
eru af miklum gæðum, teknar af fagmönnum og hafa samræmt útlit á milli
frambjóðenda. Ef frjálsu myndefni frá flokkinum sjálfum er ekki til að
dreifa verða höfundar Wikipediu að reiða sig á frjálst myndefni frá
öðrum aðilum sem þýðir það að annað hvort eru greinar ekki
myndskreyttar eða þeir notast við myndir sem ekki hafa sömu tæknilegu
gæði og eru líkast til teknar af áhugaljósmyndurum við ýmis opinber
tækifæri fremur en í stúdíói.
Greinar Wikipediu eru alla jafna á meðal efstu niðurstaðna í
leitarvélum á netinu og það er því til mikils að vinna fyrir
stjórnmálaframboð að þær líti sem best út og noti bestu mögulegu
myndirnar. Bent skal á að fjölmargir aðilar úti um allan heim hafa nú
þegar kosið að fara þessa leið. Þar má til dæmis benda á stjórn
Baracks Obama í Hvíta húsinu og Norðurlandaráð.(tenglar)
Hvernig getur flokkurinn gefið myndefni sitt út með frjálsu afnotaleyfi?
Í fyrsta lagi þarf flokkurinn að afla leyfis síns ljósmyndara fyrir
því að heimilt sé að gefa myndirnar út samkvæmt frjálsu afnotaleyfi.
Ef flokkurinn kaupir þjónustu atvinnuljósmyndara við myndatökur af
frambjóðendum þá eru líklega nú þegar um að ræða skilmála þar sem
rétthafi myndanna, ljósmyndarinn, afsalar sér til flokksins réttinum
til dreifingar og útgáfu myndanna. Þessa skilmála þarf að útvíkka
þannig að þeir nái til þess að gefa myndirnar út samkvæmt frjálsu
afnotaleyfi á borð við Creative Commons BY.
Í öðru lagi þarf flokkurinn að gefa myndirnar út opinberlega sjálfur,
annað hvort á eigin vefsvæði eða til dæmis á þjónustu á borð við
Flickr þannig að ekki fari á milli mála að myndirnar séu gefnar út
samkvæmt CC-leyfi. Það getur einfaldlega verið stuttur texti á borð
við: „Myndir á þessari síðu eru gefnar út samkvæmt afnotaleyfinu
Creative Commons BY-SA 3.0.“ Ef flokkurinn er með Flickr-aðgang þá er
innbyggður möguleiki í viðmóti vefsins til þess að gefa myndir út
samkvæmt CC-leyfum.
--
Bjarki Sigursveinsson
+354 8215644
Mánagötu 8
105 Reykjavík
Iceland
_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l(a)lists.wikimedia.org
https://lists.wikimedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l