Nafn er eitthvað óþýðanlegt. Við erum hinsvegar að tala um orð sem
samanstendur af tveimur þýðanlegum orðum.
Sem dæmi er hægt að þýða Torre di Pisa sem Skakki turninn í Písa en
ekki er hægt að þýða California nema bara þá að skrifa það með
íslensku stöfum og málreglum - Kalifornía.
On Sat, 11 Sep 2004 17:24:41 -0000, Svavar Lúthersson <svavarl(a)stuff.is> wrote:
Sælir,
Ég hef nefnt þetta áður, held að það hafi verið á irc, en ég er algerlega á
móti því að nafnið Wikipedia sé þýtt. Þetta er jafn fáránlegt og að þýða
nöfn erlendra einstaklinga. Það er hægt að ganga of langt í þýðingum og
langar mig ekki að Wikipedia falli í þá gryfju.
Með kveðju,
Svavar Lúthersson (svavarl(a)stuff.is)
----- Original Message -----
From: "Ævar Arnfjörð Bjarmason" <avarab(a)gmail.com>
To: <wikiis-l(a)wikipedia.org>
Sent: Saturday, September 11, 2004 4:47 PM
Subject: [WikiIS-l] Þýðing á „Wikipedia"
Ég var að spá í hvort menn væru með einhverja sniðuga þýðingu á orðinu
„Wikipedia" yfir á íslensku, það stendur svolítið út á
alfræðiorðabókinni núna þar sem það er Havæskt og Enskættað.
Annað hvort væri þá hægt að reyna að beinþýða orðið eins og það
stendur á ensku og havæsku sem væri eitthvað eins og „Hröðalfræði" eða
„Skjótalfræði", nota einhvern orðbastarð eins og „Wikialfræði" eða
„Wikifræði" (Jafnvel að stafa það með V-i í stað W's)eða að finna upp
eitthvað nýtt orð sem notar þá ekki „Hratt" eða samheiti þess þarna
fremst.
Ýtarefni:
http://en.wiktionary.org/wiki/Wiki :
From Hawaiian wikiwiki "quickly".
http://en.wiktionary.org/wiki/Wikiwiki :
Adjective (Lýsingarorð) = Quick (Hratt)
Adverb (Atviksorð) = Quickly (Hratt)
http://en.wikipedia.org/wiki/Wiki :
Cunningham named the term wiki for the "wiki wiki" or "quick"
shuttle
buses at Honolulu Airport. Wiki wiki was the first Hawaiian term he
learned on his first visit to the islands, when the airport counter
agent directed him to take the wiki wiki bus between terminals.
According to Cunningham, "I chose wiki-wiki as an alliterative
substitute for quick and thereby avoided naming this stuff quick-web."
_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l(a)wikimedia.org
http://mail.wikipedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l