Nafn er eitthvað óþýðanlegt. Við erum hinsvegar að tala um orð sem samanstendur af tveimur þýðanlegum orðum.
Sem dæmi er hægt að þýða Torre di Pisa sem Skakki turninn í Písa en ekki er hægt að þýða California nema bara þá að skrifa það með íslensku stöfum og málreglum - Kalifornía.
On Sat, 11 Sep 2004 17:24:41 -0000, Svavar Lúthersson svavarl@stuff.is wrote:
Sælir,
Ég hef nefnt þetta áður, held að það hafi verið á irc, en ég er algerlega á móti því að nafnið Wikipedia sé þýtt. Þetta er jafn fáránlegt og að þýða nöfn erlendra einstaklinga. Það er hægt að ganga of langt í þýðingum og langar mig ekki að Wikipedia falli í þá gryfju.
Með kveðju, Svavar Lúthersson (svavarl@stuff.is)
----- Original Message ----- From: "Ævar Arnfjörð Bjarmason" avarab@gmail.com To: wikiis-l@wikipedia.org Sent: Saturday, September 11, 2004 4:47 PM Subject: [WikiIS-l] Þýðing á „Wikipedia"
Ég var að spá í hvort menn væru með einhverja sniðuga þýðingu á orðinu „Wikipedia" yfir á íslensku, það stendur svolítið út á alfræðiorðabókinni núna þar sem það er Havæskt og Enskættað.
Annað hvort væri þá hægt að reyna að beinþýða orðið eins og það stendur á ensku og havæsku sem væri eitthvað eins og „Hröðalfræði" eða „Skjótalfræði", nota einhvern orðbastarð eins og „Wikialfræði" eða „Wikifræði" (Jafnvel að stafa það með V-i í stað W's)eða að finna upp eitthvað nýtt orð sem notar þá ekki „Hratt" eða samheiti þess þarna fremst.
Ýtarefni:
http://en.wiktionary.org/wiki/Wiki :
From Hawaiian wikiwiki "quickly".
http://en.wiktionary.org/wiki/Wikiwiki : Adjective (Lýsingarorð) = Quick (Hratt) Adverb (Atviksorð) = Quickly (Hratt)
http://en.wikipedia.org/wiki/Wiki : Cunningham named the term wiki for the "wiki wiki" or "quick" shuttle buses at Honolulu Airport. Wiki wiki was the first Hawaiian term he learned on his first visit to the islands, when the airport counter agent directed him to take the wiki wiki bus between terminals. According to Cunningham, "I chose wiki-wiki as an alliterative substitute for quick and thereby avoided naming this stuff quick-web." _______________________________________________ WikiIS-l mailing list WikiIS-l@wikimedia.org http://mail.wikipedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l