On Sat, 04 Sep 2004 00:55:37 +0000, Fridrik Bragi Dyrfjord
<fbd(a)simnet.is> wrote:
Heil og sæl!
Smá listi yfir það sem _ég_ vil gera fyrir tiltektina;
1) Mig langar að henda þessari töflu með flokkum út og setja upp
svipaðan „navigator" og á en.wikipedia - nákvæmlega eins reyndar, nema
hvað hann verður náttúrulega íslenskaðir.
Líst ágætlega á það, væri kannski sniðugt
að setja lýsingu á flokkana
líka eins og er hér:
http://en.wikipedia.org/wiki/Category:Culture en
ekki í okkar:
http://is.wikipedia.org/wiki/Flokkur:Menning
2) Losna við alla „rauða tengla".
Hehe, gangi þér vel með það, ég vona þá að
þú ætlir að skrifa greinar
en ekki að fjarlægja tenglana?;=)
3) Uppfæra „Í fréttum".
Frábært, þarf einmitt að uppfæra það, það bara virðist
enginn nenna því.
Tilgangurinn með bréfinu er bara að búa til listan og að auki fá
samþykki „The Elders" (aðalega Ævars, sjálfskipuðum leiðtoga;) til að
breyta þessum „navigator".
Ég reyndar stjórna engu hérna, en ágætt að fá
skoðanir annara á
breytingum ef þú ert ekki viss með þær. Við getum þá alltaf breytt
þessu til baka ef þetta verður eitthvað hræðilegt (sem það verður án
efa ekki)
Kveðja,
Friðrik Bragi Dýrfjörð
_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l(a)wikimedia.org
http://mail.wikipedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l