Sæl öll og afsakið krosspóstun,
Árleg ráðstefna FSFÍ um stafrænt frelsi verður haldin í þriðja sinn þann 1. desember næstkomandi á Háskólatorgi, stofu HT-104.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar í ár verða Christer Gundersen frá Friprogsenteret í Noregi og Karen Reilly frá TOR verkefninu en auk þeirra verður fjöldi áhugaverðra innlendra fyrirlesara.
Ráðstefnan í ár verður opnuð af mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, klukkan 09:00 og stendur allt þar til Frelsisverðlaun FSFÍ árið 2010 hafa verið afhent klukkan 17:00.
Dagskrá ráðstefnunnar í ár má sjá í meðfylgjandi skjali og hér fyrir neðan. Vinsamlegast áframsendið auglýsinguna til allra sem þið haldið að hafið áhuga.
Ráðstefnan er eins og alltaf ókeypis og opin fyrir alla. Þeir sem vilja leggja FSFÍ lið við skipulagningu ráðstefnunnar er bent á að hægt er að styrkja FSFÍ með fjárframlagi. Reikningsnúmer FSFÍ er 526-26-3638 og kennitala félagsins er 470308-1170. Allir sem styrkja FSFÍ fara á styrktaraðilalista FSFÍ http://www.fsfi.is/styrktaradilar/ nema óskað sé eftir nafnleynd.
Dagskrá ráðstefnunnar:
09:00 Skráning og kaffi
10:00 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra Kynning og opnun ráðstefnu
10:20 Christer Gundersen Frjáls hugbúnaður hjá norskum stjórnvöldum
11:20 Sigurbjörg Jóhannesdóttir Opin námsgögn 11:40 Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir Frjálst efni á Tungumálatorgi 12:00 Snorri Þór Tryggvason Cloudberry verkefnið
12:20 Hádegishlé
13:00 Gunnar Grímsson Stafrænt lýðræði með samráðskerfum 13:20 Birita í Dali Viðskiptalíkön fyrir frjálsa menningu 13:40 Hildur Björn Vernudóttir Frjáls hugbúnaður í litlum og miðlungsstórum fyrirtækjum 14:00 Bjarni Rúnar Einarsson 1000x stækkun vefsins með PageKite.net 14:20 Anna Jonna Ármannsdóttir Frjáls hugbúnaður í Háskóla Íslands
14:40 Kaffihlé
15:00 Karen Reilly TOR: Privacy, anonymity, and freedom of expression
16:00 Berglind Ósk Bergsdóttir Stafrænt frelsi og umhverfisvernd 16:20 Jóhannes Birgir Jensson Frjálsar bókmenntir og Gutenberg verkefnið
16:40 Frelsisverðlaun FSFÍ 2010
17:00 Ráðstefnuslit
Yfirlitssíða ráðstefnunnar: http://www.fsfi.is/atburdir/radstefna-um-stafraent-frelsi-2010/
Facebook atburður ráðstefnunnar: https://www.facebook.com/event.php?eid=172903766062293
Vefsíða Friprogsenteret: http://friprog.no/ Vefsíða TOR verkefnisins: https://www.torproject.org/