Góðan dag.
Stofnun Wikimedia Ísland er aftur komin á dagskrá. Undirbúningur hófst árið 2007 en lagðist síðan í dvala. Nú er ætlunin að klára þetta, helst fyrir 10 ára afmæli íslensku Wikipediu.
Undirbúningshópurinn óskar eftir þátttakendum í stofnun félagsins, hvort sem það er í orði eða verki. Allir áhugasamir eru hvattir til að rita undir þátttakendalistann á tilheyrandi síðu[1]. Þau sem vilja fylgjast með umræðunum eða taka frekari þátt í undirbúningnum geta skráð sig á póstlista Wikipediu[2] eða fylgst með í Pottinum[3]. Vilji fólk tilkynningar og fundarboð á notendaspjallsíðu sína er hægt að rita undir sérstakan lista þess efnis[1].
Drög að lögum félagsins[4] eru opin fyrir breytingum til laugardagsins 11. maí 2013. Fyrir smærri breytingar megið þið breyta skjalinu beint en stórtækar ákvarðanir ættu að vera ræddar fyrst á spjallsíðu lagasíðunnar. Sama gildir um annað spjall eða athugasemdir við drögin.
Stofnfundur félagsins fer fram eftir yfirferð og samþykki Wikimedia Foundation fyrir stofnun þess. Fundartíminn og fundarstaðurinn verður svo ákveðinn þegar samþykkið liggur fyrir.
[1] https://is.wikipedia.org/wiki/Wikipedia:Wikimedia_%C3%8Dsland [2] https://lists.wikimedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l [3] https://is.wikipedia.org/wiki/Wikipedia:Potturinn [4] https://is.wikipedia.org/wiki/Wikipedia:Wikimedia_%C3%8Dsland/Sam%C3%BEykkt
Með kveðju, Svavar Kjarrval