Svaraði svavar bara og gleymdi að setja á listann
---------- Forwarded message ----------
From: Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab(a)gmail.com>
Date: Thu, 2 Sep 2004 13:51:45 +0200
Subject: Re: [WikiIS-l] Auglýsingar og "Publicity"
To: Svavar Lúthersson <svavarl(a)stuff.is>
On Thu, 2 Sep 2004 07:32:56 -0000, Svavar Lúthersson <svavarl(a)stuff.is> wrote:
Sælir,
Ég er fylgjandi þessari auglýsingaraðferðum þínum. Ég er í hópnum sem gefur
út skólablaðið (útgáfudagur er næsta vor) og er að reyna að troða Wikipedia
greinum inn á það. Veit að þetta er langur tími en það ætti að auka líkurnar
á að efnið fái fastari sess í stað þess að vera stundaræði, sérstaklega þar
sem blaðinu er dreift í 10. bekki í bænum, allra nemenda framhaldsskólans
sjálfs og síðan í bókasöfn annarra framhaldsskóla á landinu. En það er samt
langur tími þangað til blaðið kemur út og það ætti ekki að vera svo slæmt að
greinar íslenska Wikipedia komi út á prenti. Held að copyleft leyfið sem að
greinar Wikipedia fylgja, mæli ekki gegn svona dreifingu á efninu, því
hingað til hefur blaðið verið útbýtað endurgjaldslaust og býst ég við því að
verði svoleiðis líka með næsta blað.
Það er ekkert í leyfinu sem myndi mæla gegn
því að selja þetta blað heldur:
"The purpose of this License is to make a manual, textbook, or other
functional and useful document "free" in the sense of freedom: to
assure everyone the effective freedom to copy and redistribute it,
with or without modifying it, either commercially or noncommercially.
Secondarily, this License preserves for the author and publisher a way
to get credit for their work, while not being considered responsible
for modifications made by others. "
S.s. það sem maður þarf að gera ef maður tekur greinar af Wikipedia og
dreifir þeim í stóru upplagi er að prenta út það sem stendur í
greininni, svo þarftu að skrifa einhvern fyrir greinini sem er hægt að
gera á tvennan hátt, í fyrsta lagi getur þú listað 5 aðalhöfunda
skalsins og í öðru lagi getur þú bara bent á wikipedia greinina þar
sem hún listar þá.
Í þriðja lagi þarftu að hafa GFDL í einhverju formi, sem þú getur gert
með að prenta það allt út með (ekki næs) eða einfaldlega að benda
fólki á það á
www.gnu.org/copyleft/fdl.html
s.s
[grein]
Grein þessi er tekin af greininni „Xibhobbidoob" á
http://is.wikipedia.org og er hún undir frjálsa GNU handbókarleyfinu
sem hægt er að nálgast á
http://www.gnu.org/copyleft/fdl.html
Auðvitað getur þú einnig sett þetta annar staðar en fyrir neðan
greinina ef þú ert að nota margar greinar. t.d. einhverstaðar í blaðið
þar sem höfundar eru venjulega skrifaðir
"Greinarnar „1", „2" og „3" eru teknar af
http://is.wikipedia.org
og
eru undir frjálsa GNU handbókarleyfinu sem hægt er að nálgast á
http://www.gnu.org/copyleft/fdl.html
Þar sem ég nefni framhaldsskóla, þá hef ég sýnt kennurum Wikipedia og hafa
þeir hingað til verið ánægðir með það. T.d. var eðlisfræðikennarinn að dást
að [[SI mælieiningar]] síðunni sem ég sýndi honum. Ef við skrifum meira efni
sem tengist námsefninu í framhaldsskóla, þá gætu jafnvel kennarar vísað
nemendum sínum á vefinn fyrir auka fróðleik, kannski jafnvel til að gera
verkefni úr textanum.
Fyrir utan skólablaðið, þá er ég tilbúinn að hjálpa til við frekari kynningu
á Wikipedia.
Með kveðju,
Svavar Lúthersson
----- Original Message -----
From: "Ævar Arnfjörð Bjarmason" <avarab(a)gmail.com>
To: <wikiis-l(a)wikipedia.org>
Sent: Wednesday, September 01, 2004 10:10 PM
Subject: [WikiIS-l] Auglýsingar og "Publicity"
Tilgangur þessa pósts er að ræða það hvernig við getum í sameiningu
vakið áhuga og vitneskju um Wikipedia verkefnið.
Aðalmarkmiðið yrði þá fyrst og fremst að fá fleira fólk til að bæta
við efni hérna auk þess auðvitað að fá lesendur á það efni sem hér er.
Hafa svona aðferðir virkað ágætlega, danskan sem dæmi var að svipaðri
stærð og við þegar þeir fengu eitthvað blað til að skrifa grein um sig
og fengu þessa líka rosalegu umfjöllun út á það.
Það sem við gætum meðal annars gert væri:
1. Klína upp þessum plaggötum (
http://is.wikipedia.org/wiki/Wikipedia:Augl%C3%BDsingar ) á veggi
skóla landsins.
2. Senda póst á skóla, bókasöfn og aðarar álíka stofnanir og fá þá til
að prenta þetta út hjá sér og klína upp á vegg.
3. Kynna þetta annars staðar á hinu íslenska interneti, t.d. á
póstlistum og fleira
4. Senda DV,Fréttablaðinu,Mogganum,RÚV,S1,Norðurljósum og öðrum svona
staðlað bréf og segja þeim frá þessu
_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l(a)wikimedia.org
http://mail.wikipedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l