Góðan dag.
Stofnun Wikimedia Ísland er aftur komin á dagskrá. Undirbúningur hófst
árið 2007 en lagðist síðan í dvala. Nú er ætlunin að klára þetta, helst
fyrir 10 ára afmæli íslensku Wikipediu.
Undirbúningshópurinn óskar eftir þátttakendum í stofnun félagsins, hvort
sem það er í orði eða verki. Allir áhugasamir eru hvattir til að rita
undir þátttakendalistann á tilheyrandi síðu[1]. Þau sem vilja fylgjast
með umræðunum eða taka frekari þátt í undirbúningnum geta skráð sig á
póstlista Wikipediu[2] eða fylgst með í Pottinum[3]. Vilji fólk
tilkynningar og fundarboð á notendaspjallsíðu sína er hægt að rita undir
sérstakan lista þess efnis[1].
Drög að lögum félagsins[4] eru opin fyrir breytingum til laugardagsins
11. maí 2013. Fyrir smærri breytingar megið þið breyta skjalinu beint en
stórtækar ákvarðanir ættu að vera ræddar fyrst á spjallsíðu
lagasíðunnar. Sama gildir um annað spjall eða athugasemdir við drögin.
Stofnfundur félagsins fer fram eftir yfirferð og samþykki Wikimedia
Foundation fyrir stofnun þess. Fundartíminn og fundarstaðurinn verður
svo ákveðinn þegar samþykkið liggur fyrir.
[1]
https://is.wikipedia.org/wiki/Wikipedia:Wikimedia_Ísland
[2]
https://lists.wikimedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l
[3]
https://is.wikipedia.org/wiki/Wikipedia:Potturinn
[4]
https://is.wikipedia.org/wiki/Wikipedia:Wikimedia_Ísland/Samþykkt
Með kveðju,
Svavar Kjarrval