Það er þarft verk að auka virkni á íslensku Wikimedia verkefnunum og
einnig auka virkni fleiri einstaklinga svo viðhald verkefnanna sé ekki á
herðum fárra.
Nú er ég að taka þátt í ýmsum verkefnum sem gæti verið hægt að tengja
við íslenska verkefnin. Þau myndu samt krefjast einhverrar aukavinnu sem
ég get því miður ekki staðið einn í. Þau eru aðallega:
1) Gerð orðtíðnilista þar sem ég mun taka saman ýmsa prófarkarlesna
texta sem ég finn og reikna út hversu oft hvert orð kemur fyrir. Þann
lista gæti ég blandað saman við lista yfir greinar á íslenska Wiktionary
og séð tíðustu orðin sem hafa ekki grein með sama nafni.
2) Bæta Wikistats ( http://www.kjarrval.is/wiki/) svo það komi fram
meira um greinarnar, til dæmis hvort þær séu til, eru merktar sem
stubbar og hversu langar þær eru.
3) Fá lista yfir vinsælustu greinarnar á ensku Wikimedia verkefnunum og
viðhalda lista yfir þær greinar sem skortir tengingu við þau íslensku.
Gæti gagnast til að meta hvort íslensku útgáfur greinanna eru til enda
gæti það gefið til kynna að greinina vanti inn á íslenska hluta
verkefnisins.
4) Er í samstarfi við Óla Gneista sem er með rafbokavefur.is og lánaði
honum bókaskanna sem ég (og afi minn) smíðuðum. Hann skannar aðallega
inn bækur með útrunninn höfundarétt. Eintök gætu einnig ratað inn á
Wikisource.
5) Gæti sett inn á Wikisource bækur úr höfundarétti sem finnast á
baekur.is. Núverandi fjöldi bóka þar er um 553 en það þyrfti að fara
yfir stöðu höfundaréttar á sumum þeirra. Mikið af ritum sem eru svo
gömul að það væri betra að skrifa þau upp heldur en að ljóslesa.
6) Gæti náð í innskönnuð þingskjöl og erindi til Alþingis og sett inn á
Wikisource. Þingskjölin eru held ég um 96 þúsund en veit ekki fjölda
erinda. Myndi ekki gera þetta nema með nokkuð sjálfvirkum hætti.
7) Er að reyna að redda innskönnuðum Alþingistíðindum. Ef það tekst get
ég sett þau inn á Wikisource.
Ætla samt ekki að lofa neinu og þetta er líka byggt á áhuga og vilja
fólks til að halda áfram að vinna með þau gögn sem ég get reddað.
- Svavar Kjarrval
On 18/01/13 20:35, Bjarki Sigursveinsson wrote:
Sæl öll,
Fyrir mörgum árum var uppi umræða um stofnun Wikimedia-félags á Íslandi
en hún fjaraði út og hefur legið í dvala lengi. Ég vil gjarnan lífga
þetta við og sjá WMIS verða að veruleika. WMF mælir þó ekki með því að
gengið sé frá opinberri skráningu og formlegri stofnun félags fyrr en
sýnt er fram á að virkur kjarni félagsmanna sé til staðar þannig að
fyrst þurfum við að sýna fram á það að við getum komið hlutum í verk sem
óformlegur félagsskapur. Ef það hjálpar til, þá eru þau hjá WMF tilbúin
til þess að leyfa svona óformlegum hópum wikiáhugamanna að nota nafn og
logo WMF en það er þá hvert verkefni metið fyrir sig.
Kjörið er að lífga við þennan póstlista til þess að varpa fram hugmyndum
að hentugum verkefnum en ég held jafnframt að það gæti verið gagnlegt að
áhugasamir einstaklingar hittist og fundi um stöðuna og næstu mögulegu
skref. Ég hef undanfarið verið að kanna stöðuna á íslensku útgáfum
Wikimedia-verkefnanna og punkta hjá mér athugasemdir og pælingar en það
er ljóst að Wikipedia þarf á rækilegri innspýtingu að halda, svo ekki sé
nú minnst á litlu systurnar hennar. Ég hef einnig tekið frá IRC-rásina
#wikimedia-is á Freenode þar sem ræða má þessi mál.
_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l@lists.wikimedia.org
https://lists.wikimedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l