Sælir
Ég væri vel til í fund. Ég verð hins vegar fjarri góðu gamni uppí bústað í Hvítársíðunni.
Ég held engu að síður að það sé mjög sniðugt að við gerum þetta að reglulegum viðburðum.
Einu sinni á mánuði eða svo.
Ég legg hins vegar til að við setjum í forgang þa verkefni að reyna að fjölga virkum
notendum. Ég velti því sérstaklega fyrir mér hvort snðugt sé að reyna að höfða til
framhaldsskólanema eða háskólanema þar sem þeir eru hvorteðer allan daginn á netinu. Þá
tel ég að það þurfi að taka allar stoðsíður í mjög kerfisbundna endurhönnun með það fyrir
augum að einfalda mjög ímynd þess að bæta við efni á WP. Við ættum jafnvel að skoða það að
búa til kennslumyndbönd "Hvernig á að skrifa stubb?" á Youtube, með sögumanni og
allt.
Hvernig líst ykkur á það?
Kv, Hrafn
Þann þriðjudagur 12 Febrúar 2013 17:57 GMT, skrifaði Bjarki Sigursveinsson
<bjarki(a)gmail.com>om>:
Ég er til í fund á sunnudag kl 16:30.
On 12.2.2013 10:23, Bragi Halldorsson wrote:
Töluðum um á síðasta fundi að hittast eftir
hálfan mánuð, sem væri þá
á sunnudaginn næstkomandi. Stendur það ekki ennþá, eigum við ekki að
stefna á sunnudaginn á sama stað og sama tíma? Ég get talað við vertan
á Glætunni upp á hvort þessi tími væri ekki laus aftur, það er 16:30.
Er búin síðan á fundinum síðast að vera að setja mig inn í önnur wiki
verkefni, fyrst og fremst orðabókina sem fram hefur komið að fær
töluvert af heimsóknum þótt virknin á henni sé lítil. Það er sýnist
mér aðeins ein manneskja að halda henni við og önnur á hliðarlínunni
svo ljóst er að þarna þarf eitthvað að gera til að vinna hana upp og
fleiri að taka þátt.
Er með orðabókaefni sem er með útrunninn höfundarrétt sem Gneistinn
ætlar að skanna inn fyrir mig og ég fara yfir (bara lítið hver) og
flytja svo inn á wiki þar sem hægt er síðan að vísa í hana sem og nota
efnið úr henni beint.
Finnst mikið vanta upp á að tengingar milli wiki verkefnanna séu
notaðar, eins og að tengja alltaf í orðabókina ef til er viðkomandi
orð á heiti greina á wikipedíunni, bara slíkir litlir hlutir eru
byrjuninn til þess að láta allt tala saman og styrkja þannig heildina
með lítilli fyrirhöfn. Er sjálfur byrjaður á að tengja slíkar greinar
sem ég hef verið að vinna í sem og stofna viðkomandi orð í
orðabókinni.
kv
Bragi
_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l(a)lists.wikimedia.org
https://lists.wikimedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l
--
Bjarki Sigursveinsson
+354 8215644
Mánagötu 8
105 Reykjavík
Iceland
_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l(a)lists.wikimedia.org
https://lists.wikimedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l