On Sat, 22 Jan 2005 21:06:50 -0000, Svavar Lúthersson <svavarl(a)stuff.is> wrote:
Sælir,
Ég hef ekki fengið einn einasta póst í gegnum póstlistann í langan tíma...
Ertu viss um að þetta sé ekki bara sent á annað netfang sem þú ert með?
Með kveðju,
Svavar Lúthersson (svavarl(a)stuff.is)
Hann hefur verið stilltur þannig að þegar póstur var sendur á listann
fór hann í „moderation queue" og skilaboð sem eru í þessu þarf
stjórnandi að hafna eða samþykkja, ástæðan fyrir að ekkert hefur verið
að fara af ruslpósti á listann er sú að ég hef verið að hafna þessum
skilaboðum, og koma um fimm á dag.
Ég endurstillti hann þannig að núna er sjálfgefið að ef þú ert ekki
búinn að skrá þig á listann er póstinum hafnað og send skilaboð á
sendandan þess efnis, og þar sem sjálfvirk ruslpóstforrits nenna
tæpast að ská sig fá þau „bounce" í stað þess að fara í fyrrgrent
moderation queue.
Þannig, þú hefur eðlilega ekki verið að sjá þennann póst þar sem ég
hef verið í því að tortíma honum áður en hann kemur á listann.
----- Original Message -----
From: "Ævar Arnfjörð Bjarmason" <avarab(a)gmail.com>
To: <wikiis-l(a)wikipedia.org>
Sent: Saturday, January 22, 2005 8:47 PM
Subject: [WikiIS-l] Breytingar á póstsíjunni
Ég hef breytt póstsíjunni þannig að ekki er lengur hægt að senda póst
á listann nema var áskrifandi að honum, mér þykir leitt að þurfa að
grípa til þessara ráða en eins og málin standa einfaldlega nenni ég
ekki að fá um fimm tölvupósta á dag um viagratöflur, typpa– og
brjóstastækkanir, frá nígerískum prinsum auk ýmiss bulls á tungumálum
sem ég skil ekki.
Ef einhver vill taka að sér „starf" „list moderators" er hægt að
slökkva á þessu aftur, en ekki nenni ég að fara yfir þetta sorp allt.
_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l(a)wikimedia.org
http://mail.wikipedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l
_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l(a)wikimedia.org
http://mail.wikipedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l