Leit yfir listann yfir WikiMedia félög og öll hafa þau WikiMedia í nafninu. Það virðist hins vegar ekki vera skylda svo best sem ég sé. Fyrirkomulagið að hafa deild inn í öðru félagi virðist ekki enn hafa hlotið formlegt samþykki hingað til. Samtökin gætu samt haft áhyggjur af því að FSFÍ hafi margt annað að gera líka eða vilja ekki að að formlega samþykkt félög blandi sér í önnur málefni.

Er annars ekki sterkara í samskiptum við hið opinbera ef bæði FSFÍ og WikiMedia Ísland myndu mæla með einhverju eða mótmæla, en ekki bara annað félagið?

Ætti samt ekki að saka að spyrja WikiMedia Foundation að þessu. Hver vill taka það að sér?

- Svavar Kjarrval

On 05/03/13 14:25, Tryggvi Björgvinsson wrote:
Þann þri 5.mar 2013 14:16, skrifaði Bragi Halldorsson:
Gæti semsagt wikimediafélag hér á landi með viðurkenningu sem málsvari
WikiMedia Foundation (eða er það ekki það sem slíkt félag yrði?) verið
handhafi lénsinns?
Væri mögulegt að gera þetta í gegnum FSFÍ? Það eru skráð félagasamtök
sem eiga að sameina ýmis verkefni sem tengjast frjálsri þekkingu,
frjálsri menningu, frjálsum hugbúnaði, frjálsum samskiptum - einmitt til
þess að það þurfi ekki að stofna "obb'slega" mikið af litlum félögum.

WikiMedia Ísland gæti verið nokkurskonar "deild" innan þess félags.

/Tryggvi - sem er biased þar sem ég er einn af stofnfélögum og titlaður
formaður FSFÍ




_______________________________________________
WikiIS-l mailing list
WikiIS-l@lists.wikimedia.org
https://lists.wikimedia.org/mailman/listinfo/wikiis-l